
| Akstur |
|
|
|
Ferliþjónusta er ætluð þeim einstaklingum sem skv. greiningu læknis hafa skerta getu andlega eða líkamlega og hafa ekki afnot af bifreið eða getu til að aka. Tilgangur ferliþjónustu fatlaðra
Þjónustusvæði ferliþjónustunnar er Fljótsdalshérað og skiptist annars vegar í þéttbýli Egilsstaða og Fellabæjar og hins vegar í dreifbýli. Fatlaðir hafa forgang en aldraðir og sjúkir geta sótt um þjónustuna og er þá hver umsókn metin sérstaklega. Þjónusta í þéttbýli er frá kl. 8:00 - 17:00, en samið er sérstaklega í hverju tilviki í dreifbýli. |
