Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-02.jpg
Íþróttahús Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Á Fljótsdalshéraði eru fjögur íþróttahús í Fellabæ, Brúarási, Hallormsstað og á Egilsstöðum.

ithrottamidst_fellabaeFjölnotahúsið í Fellabæ

Fjölnotahúsið í Fellabæ var tekið í notkun í lok árs 2004.  Íþróttasalurinn er  323 m2 að stærð og lagður parketi.  Hann er fyrst og fremst notaður til íþróttakennslu fyrir grunnskóla og leikskóla fyrrihluta dags, en síðdegis og á kvöldin er hann leigður út til einstaklinga og íþróttafélagana.  Einstaka sinnum er fjölnotasalurinn notaður fyrir menningarlegar uppákomur s.s. dansleiki og þorrablót Fellamanna.
Umsjónarmaður með Fjölnotahúsinu í Fellabæ er Hreinn Halldórsson – sími 470 0778. bruarasskoli

                                      

Íþróttahús Brúaráss

Íþróttahúsið í Brúarási er byggt við Brúarásskóla og er um 400 m2 að stærð.  Húsið er aðallega notað til íþróttakennslu við Brúarásskóla og nýtist jafnframt vel til íþrótta- og tómstundastarfs með nemendum skólans. 
Þó að skólinn noti húsið mestmegnis eru þó alltaf einhverjir tímar leigðir út til einkanota.  Samkomur eru líka haldnar í salnum og má þar t.d. nefna þorrablót sveitarinnar.    Umsjónarmaður með íþróttahúsinu í Brúarási er Stefanía Malen Stefánsdóttir, skólastjóri Brúarásskóla, netfang: stefaniam(hjá)egilsstadir.is

hallormsst._ithrottahusÍþróttahús Hallormsstað 

Íþróttahúsið á Hallormsstað er í eigu Hallormsstaðaskóla, enda er það samkomusalur skólans og almenn kennslustofa.   Íþróttasalurinn sjálfur er um 200 m2 að stærð og lagður dúk.  Íþróttakennsla við Hallormsstaðaskóla fer fram í húsinu og einnig nýtist það vel til tómstundastarfs fyrir nemendur.  Í íþróttasalnum er ágæt ráðstefnuaðstaða með hljóðkerfi, skjávarpa, föstu sýningartjaldi og þráðlausu netsambandi. 
Hallormsstaðaskóli notar húsið að mestu en einhverjir tímar eru leigðir út til einkanota og einnig hafa nemendur Hússtjórnarskólans á Hallormsstað haft þar fasta tíma.
Íþróttahúsið er nokkuð vel tækjum búið  til íþróttaiðkunar og við það er kennslusundlaug sem notuð er vor og haust.
Umsjónarmaður með íþróttahúsinu á Hallormsstað er skólastjóri Hallormsstaðaskóla,
sími 4700 630. ithrottamidstod_egilsstodum

Íþróttamiðstöðin Egilsstöðum

Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum er með íþróttasal sem er 1200 m2 sem hægt er að skipta niður í þrjár einingar. Á efri hæð hússins er líkamsræktaraðstaða með góðum tækjum og í kjallara hússins er lítill salur þar sem boðið er upp á ýmis konar leikfimi.
Íþróttakennsla  Egilsstaðaskóla fer fram í Íþróttamiðstöðinni.  Einnig hefur  Menntaskólinn á Egilsstöðum aðgang að húsinu til íþróttakennslu og þjálfunar. Aðrir aðalnotendur eru Íþróttafélagið Höttur og Íþróttafélag Menntaskólans. Félagsmiðstöðin Ný-ung hefur verið með opið hús í Íþróttamiðstöðinni annað hvert föstudagskvöld.
 Auk hefðbundinnar íþróttastarfsemi má nefna að Íþróttamiðstöðin gegnir mikilvægu hlutverki sem fjölnotahús, þar eru haldnir tónleikar, ýmsar sýningar og aðrar stórar samkomur.
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar er Hreinn Halldórsson, sími: 4700 777.

Hér má sjá heimasíðu íþróttamannvirkja

 

 

 
Borði
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs