
| Skíðasvæði |
|
|
|
Skíðasvæðið í Stafdal á Fjarðarheiði Fljótsdalshérað og Seyðisfjarðarkaupstaður hafa með sér samstarf um rekstur skíðasvæðis í Stafdal sem liggur á milli Efri-stafs og Neðri-stafs í Fjarðarheiði, aðeins 10 mínútna akstur frá Seyðisfirði og 15 mínútna akstur frá Egilsstöðum. Á skíðasvæðinu í Stafdal er 1 km löng diskalyfta þar sem skíðabrekkur eru við allra hæfi, jafnt fyrir lengra komna sem styttra. Barnalyfta er einnig á svæðinu. Svæðið er flóðlýst. Hægt er að kaupa léttar veitingar (kakó ,vöfflur ofl) um helgar í skíðaskálanum. Auk þess að vera eitt af betri svigskíða- og brettasvæðum á landinu eru möguleikarnir endalausir í Stafdal. Þar er einnig í boði frábært göngu- og vélsleðasvæði. Ýmsar nýjungar og framkvæmdir eru fyrirhugaðar á svæðinu af hálfu samstarfsaðilanna um svæðið. Að vetri til, eftir áramótin, er opið daglega kl. 16-19 á skíðasvæðinu, en það veltur þó á veðri hverju sinni. Gönguskíðabrautir eru venjulega lagðar um helgar og stundum í miðri viku sé þess óskað. Nýr skíðaskáli var vígður við hátíðlega athöfn þann 15. mars 2008 og einnig var keyptur nýr troðari það sama ár. Kynnið ykkur aðstæður með því að hringja í 878 1160 Verðskrá 2009 Heimasíða Skíðafélagsins er http://www.123.is/skis/ |