Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-12.jpg
Söfn Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Í Safnahúsinu Laufskógum 1 á Egilsstöðum eru starfrækt þrjú söfn, Minjasafn Austurlands, Héraðsskjalasafn Austfirðinga og Bókasafn Héraðsbúa. Öll þessi söfn hafa auk reglubundinnar starfsemi boðið upp á sérsýningar og ýmiss konar kynningar og skemmtidagskrár, bæði hvert um sig á sínu sviði og jafnframt sameina söfnin í Safnahúsinu reglulega krafta sína og bjóða upp á áhugaverða dagskrárliði.

 

Minjasafn Austurlands

Á sýningum safnsins er hægt að skoða muni sem tengjast menningu, atvinnuháttum og daglegu lífi á Austurlandi frá upphafi safnahusidlandnáms til okkar daga. Þann 7. maí 2006 opnaði ný grunnsýning á Minjasafninu. Sýningin nefnist „Sveitin og þorpið“ en í henni er reynt að varpa ljósi á gamla íslenska sveitasamfélagið en einnig er sjónum beint að samfélagsþróun á Austurlandi um miðbik 20. aldar. Á grunnsýningunni gefur einnig að líta gripi sem fundist hafa við fornleifauppgreftri á Austurlandi. Sumir þeirra eru álitnir vera um eða yfir 1000 ára gamlir. Þessir gripir eru fengnir að láni frá Þjóðminjasafni Íslands samkvæmt samstarfssamning þess við Minjasafn Austurlands og munu þeir verða til sýnis á Minjasafninu fram á næsta ár.

Á sérsýningum safnsins eru rannsóknum þess gerð skil. Sumarið 2000 var opnuð sýningin Mörk heiðni og kristni, sem sýnir afrakstur fornleifarannsókna safnsins að Geirsstöðum í Hróarstungu og á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði.
 
Á sumrin eru haldnir svokallaðir "þjóðháttardagar" einu sinni í viku. Á þeim er þjóðlegum arfi, s.s. handverki og verkhefðum gert hátt undir höfði. Gestum safnsins gefst þá færi á að reyna sig ýmis verk, t.d. ýsubeinaútskurð og útsaum. Dagskrá þjóháttadaganna er auglýst hvert sumar á heimasíðu safnsins.

Minjasafnið hefur og umsjón með Kjarvalshvammi í Hjaltastaðaþinghá, þar sem Kjarval bjó og málaði, og Geirsstöðum í Hróarstungu, þar sem getur að líta tilgátuhús; endurgerða kirkju frá upphafi kristni á Íslandi. Endurgerð kirkjunnar byggir á niðurstöðum fornleifarannsóknar á samnefndum stað. Áhugasamir geta fengið upplýsingar um þessa staði, auk fundarstaðs Þórisárkumlsins, í afgreiðslu safnsins áður en lagt er í skoðunarferð um þá.

Safnið býður upp á virka safnfræðslu og er tekið vel á móti hópum á öllum skólastigum. Safnstjóri hefur unnið með leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum að margvíslegum verkefnum sem tengja saman aðalnámskrá skólanna og viðfangsefni á safninu. 

Á sumrin eru sýningar safnsins opnar alla daga vikunnar frá kl. 11-17. Yfir vetrartímann er safnið opið alla virka daga frá kl. 13-17, en lokað um helgar. Opið eftir samkomulagi á öðrum tíma.
Starfsfólk: Elfa Hlín Pétursdóttir, safnstjóri – Hrafnkell Lárusson, safnvörður.

Minjasafn Austurlands
Sími: 471 1412
Fax: 471 1452
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Veffang: www.minjasafn.is

 

Héraðsskjalasafn Austfirðinga

Héraðsskjalasafn Austfirðinga var stofnað 1976. Fyrstu 20 árin starfaði það í "Gömlu símstöðinni" að Kaupvangi 1 á Egilsstöðum. 17. apríl 1996 flutti það í Safnahúsið Laufskógum 1. Í Safnahúsinu eru auk Héraðsskjalasafnsins, Minjasafn Austurlands og Bókasafn Héraðsbúa. Núverandi forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga  er Hrafnkell Lárusson.

 Safnið er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna í Múlasýslum og skipar hvert þeirra  einn fulltrúa í fulltrúaráð safnsins.  Auk Hrafnkels starfa Arndís Þorvaldsdóttir og Guðgeir Ingvarsson hjá Skjalasafninu.   Arndís sér auk þess um Ljósmyndasafn Austurlands, sem er varðveitt hjá Héraðsskjalasafninu. 

 Héraðsskjalasafnið á að varðveita skjöl og bækur sveitarfélaga, stofnana og félaga sem tengjast þeim og er þessum aðilum skylt samkvæmt lögum að skila skjölum til héraðsskjalasafnsins.  Á safninu eru lesvélar fyrir örfilmur, en á filmum eru til kirkjubækur úr Múla-, Skaftafells- og Þingeyjarsýslum. Auk þess eru til á filmum fleiri gögn, sem tengjast austfirskri sögu. Sem dæmi má nefna bréfasöfn margra þeirra sem setið hafa á Alþingi fyrir Austurland, þar má nefna Vilhjálm Hjálmarsson, Jónas Pétursson og Guttorm Vigfússon.

 Þá er á Skjalasafninu myndarlegt bókasafn sem að stofni til er gjöf hjónanna Halldórs Ásgrímssonar alþingismanns og konu hans Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Þá hafa bókasafninu borist fleiri söfn að gjöf, frá Björgu Ólafsdóttur dóttur Ólafs Jónssonar ráðunauts á Akureyri og barnabarni hans, Jóni Jakobssyni. Sigmar Magnússon bóndi í Dölum í Fáskrúðsfirði ánafnaði Héraðsskjalasafninu bókasafn sitt, en Sigmar dó 15. nóvember 1999. Einnig hafa börn og barnabörn hjónanna Helga Gíslasonar og Gróu Björnsdóttur afhent Héraðsskjalasafninu hluta af bóka- og tímaritasafni þeirra hjóna. Ekki er heimilt að lána út bækur af bókasafninu, þær verður að nota í lestrarsal safnsins. Opnunartími safnsins er frá kl. 12:00-18:00 alla virka daga.

Héraðsskjalasafn Austfirðinga
Sími: 471 1417

netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  
netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
veffangið www.heraust.is

 

Bókasafn Héraðsbúa

Bókasafn Héraðsbúa varð til við samruna nokurra lestrarfélaga á Héraði í vetrarbyrjun árið 1956. Lengi vel var safnið á flakki milli húsa á Egilsstöðum, eða allt til þess að því var komið fyrir í kjallaraherbergjum í Héraðsheimilinu Valaskjálf árið 1967. Hrakningum safnsins var þó langt í frá lokið og á árunum 1976 til 1995 var safnið enn á flakki, fyrst í kjallara Búnaðarbankans, þá í geymsluherbergjum í Menntaskólanum, síðan að Tjarnarbraut 19. Í ársbyrjun 1995 er safnið síðan flutt í eigið húsnæði á efstu hæð Safnahússins.

Bókakostur safnsins er rúmlega fjórtán þúsund bindi, en auk þess er á safninu ofurlítill vísir að myndbandasafni og hljóðbókasafni. Safnið er tölvuvætt og tengt landskerfi bókasafna, Gegni. Gestir safnsins hafa aðgang að tölvu sem mikið er notuð, ekki síst af ferðamönnum.
Bókasafn Héraðsbúa er opið alla virka daga frá kl. 14:00 - 19:00.

Bókasafn Héraðsbúa
sími: 4 700 745

netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 
Borði
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs