
| Almenningssamgöngur |
|
|
|
Almenningssamgöngur eru milli Fellabæjar og Egilsstaða. Farnar eru allt að átta ferðir á dag. Ekið er á einum bíl alla virka daga og er lagt upp frá Fellabæ, eins og tímataflan hér að neðan tilgreinir. Íbúum Fljótsdalshéraðs gefst kostur á að nýta sér almenningssamgöngur í dreifbýli til og frá þéttbýliskjörnunum Hallormsstað og Brúarási, í tengslum við skólaakstur. Almenningssamgöngur þessar eru gjaldfrjálsar. • Tímatafla fyrir akstur í þéttbýli Egilsstaða og Fellabæjar, ásamt stoppistöðvum.
|