Fara í efni

Efnisnáma við Kiðueyri í Grímsá, aðalskipulagsbreyting. Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar.

07.05.2024

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 13. mars 2024 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna efnistöku á Kiðueyri, samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan var auglýst frá 30. nóvember 2023 til og með 11. janúar 2024. Athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma gáfu ekki tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. 

Þau sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Múlaþings.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?