Fara í efni

Kárahnjúkastífla, efnisnáma. Óveruleg breyting á aðalskipulagi.

07.05.2024

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 10. apríl 2024 breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 þar sem efnisnámu við Kárahnjúkastíflu er bætt inn á gildandi skipulag. 

Breytingin felst í því að skilgreinað efnisnámu þar sem heimilað verður efnisnám á áður nýttu efnistökusvæði um 700 m norðvestan við Kárahnjúkastíflu. Náman var notuð á framkvæmdatíma og þá aðallega til grjótvinnslu. Landsvirkjun áformar að nýta námuna í sama tilgangi á komandi árum þ.e. grjótvinnslu í ölduvarnir, vegagerð og fleira. Áætlað er að vinna um 15.000 m3 á komandi árum. Flatarmál námunnar verður innan við 4.000 m2 (0,4 ha). 

Breytingin er ekki talin hafa veruleg áhrif á landnotkun né eru áhrif hennar metin mikil á einstaka aðila eða stórt landsvæði. Breytingin telst því óveruleg og hefur fengið meðferð skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hefur breytingin verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 488/2024.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skrifstofu skipulagsfulltrúa, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða sent fyrirspurn á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?