Fara í efni

Fæðingarþjónusta á Austurlandi

Málsnúmer 202403140

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 98. fundur - 19.03.2024

Tekin er til umfjöllunar sú staða sem upp er komin í fjórðungnum vegna lokunar á fæðingardeild sjúkrahússins á Neskaupsstað.

Það er með öllu óviðunandi að fjölskyldur séu settar í þá stöðu að þurfa að sækja fæðingarþjónustu út fyrir landshlutann vegna lokunar fæðingardeildar á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað. Því fylgir áhætta og óvissa á viðkvæmum tíma í lífi fjölskyldunnar og þegar síst skal auka álag og streitu. Fjölskylduráð vísar umræðunni til sveitarstjórnar og leggur til að samtal fáist við HSA og heilbrigðisráðuneytið um það sem betur þarf að gera til að ástandið sé viðunandi til frambúðar.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?