Fara í efni

Efnisnáma á Kiðueyri í landi Ketilsstaða

24.11.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 18. október 2023 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna efnisnámu á Kiðueyri í landi Ketilsstaða í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér heimild til efnistöku og haugsetningar efnis á um 22.000 m2 svæði þar sem unnir verða um 24.000 m3 næstu 3 árin.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 336/2023.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna frá 30. nóvember 2023 til og með 11. janúar 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?