Fara í efni

Frístundabyggð í landi Úlfsstaða, aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag

12.12.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 18. október 2023 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna frístundabyggðar við Úlfsstaðaholt í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulagi svæðisins í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagssvæðið er um 4,5 ha að stærð og er þar gert ráð fyrir 12 lóðum undir frístundahús. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerum 839/2023 og 841/2023.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna frá 14. desember 2023 til og með 25. janúar 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við aðalskipulagsbreytingu

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við deiliskipulagsbreytingu

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?