Fara í efni

Miðbær Egilsstaða, aðalskipulagsbreyting

04.04.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi 15. mars 2023 að auglýsa tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna miðbæjarsvæðis á Egilsstöðum í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Með breytingunni er verið að renna traustari stoðum undir stefnumörkun fyrir miðbæjarsvæði á aðalskipulagsstigi með því að hnykkja á sýn um uppbyggingu sem mótuð hefur verið á deiliskipulagsstigi.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 17. maí 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Skipulagsgögn:

Greinargerð, dags. 31. mars 2023

Getum við bætt efni þessarar síðu?