Fara í efni

Miðvangur 8, deiliskipulagsbreyting

04.04.2023

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi 10. mars 2023 að tillaga um breytingu á miðbæjarskipulagi Egilsstaða vegna Miðvangs 8 yrði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan felur í sér breytingu á byggingarreit og stækkun lóðar um 93m2 til suðurs. Jafnframt hækkar hámarksbyggingarmagn, innkeyrsla og rampur í bílakjallara eru færð til auk þess sem breytingar eru gerðar á skilmálahefti.

Tillagan er aðgengileg á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við þær. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 17. maí 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Skipulagsgögn:

Deiliskipulagsuppdráttur, dags. 02.02.23

Getum við bætt efni þessarar síðu?