Fara í efni

Selbrún, deiliskipulagsbreyting, vinnslutillaga

13.04.2022

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að unnin verði breyting á deiliskipulagi Brúna II í Fellabæ í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Áformin verða kynnt á facebook síðu Múlaþings miðvikudaginn 13. apríl og verður upptakan aðgengileg áfram. Jafnframt verður hægt að nálgast vinnslutillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum og hér neðar í fréttinni.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings, Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 4. maí 2022.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

 

Gögn til kynningar:

Vinnslutillaga, dags. 30. mars 2022

Sniðteikning, dags. 15. mars 2022

Glærukynning, dags. apríl 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?