Fara í efni

Skógarlönd 5, óveruleg breyting á deiliskipulagi

08.11.2023

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti á fundi 30. október 2023 að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi leikskólalóðar við Skógarlönd á Egilsstöðumi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt er fyrir fasteignaeigendum við Hléskóga 2-6, 8 og 10.

Um er að ræða breytingu á uppdrætti og greinargerð gildandi skipulags sem samþykkt var árið 2005 en markmið hennar er að bregðast við húsnæðisvanda leikskólans. Breytingin gerir ráð fyrir að á lóð leikskólans verði heimilt að koma fyrir færanlegri skólastofu.

Tillagan er í kynningu frá 8. nóvember til og með 6. desember 2023. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 838/2023. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is eða í síma 4-700-700.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við skipulagsbreytinguna

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Virðingarfyllst,

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Getum við bætt efni þessarar síðu?