Fara í efni

Smávirkjun við Gestreiðarstaðaháls, nýtt deiliskipulag

14.11.2023

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 5. október 2023 að tillaga nýs deiliskipulags fyrir smávirkjun við Gestreiðarstaðaháls yrði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Neyðarlínan ohf. hyggst reisa smávirkjun í Langadalsá við Gestreiðarstaðaháls á Jökuldalsheiði sem ætlað er að leysa af hólmi dísel rafstöð við fjarskiptastöð á svæðinu. Um er að ræða rennslisvirkjun sem er áætlað að muni framleiða um 50-60kW.

Skipulagstillagan er aðgengileg  í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 30/2023.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna frá 21. nóvember 2023 til og með 2. janúar 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?