Fara í efni

Stuðlagil, ferðaþjónustu og áfangastaður

20.10.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi 18. október 2023 að auglýsa að nýju tillögu að rammahluta Aðalskipulags Fljótsdalshéraðs 2008-2028 fyrir Stuðlagil á Jökuldal í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan var áður auglýst frá 13. apríl til og með 25. maí 2023. Athugasemdir bárust við auglýsta tillögu og hefur verið brugðist við þeim með breytingum á skipulagstillögunni og er hún því auglýst á nýjan leik í samræmi við 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ofangreind skipulagstillaga er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is og í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 738/2023.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna frá 20.10.2023 til og með 1.12.2023. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd við skipulagsbreytinguna

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?