Fara í efni

Unalækur á Völlum, íbúðasvæði og frístundabyggð

15.12.2023

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi 8. desember 2023 að kynna vinnslutillögu fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Unalækjar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Með breytingunni er landeigandi að bregðast við aukinni ásókn í lóðir fyrir frístundabyggð í nágrenni Egilsstaða. Þá er markmiðið að bæta aðgengi að lóðum fyrir íbúðarbyggð og auka fjölbreytileika í lóðarstærðum. Einnig verður lóðum þar sem heimild er fyrir gistirekstri fjölgað.

Ofangreind skipulagstillaga er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is og í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1029/2023.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 12. janúar 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Getum við bætt efni þessarar síðu?