Fara í efni

Verndarsvæði í byggð á Egilsstöðum

16.12.2021

Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt að auglýsa tillögu um verndarsvæði í byggð í þéttbýlinu á Egilsstöðum í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015. Svæðið sem um ræðir er á ásnum norðan Fagradalsbrautar á milli Tjarnarbrautar að hluta og Lagaráss að hluta, við götuna Selás að hluta og götuna Laufás alla. Markmið tillögu að verndarsvæði í byggð er að stuðla að vernd og varðveislu byggðar sem hefur sögulegt gildi.

Tillagan ásamt greinargerð, húsakönnun á svæðinu og fornleifaskráning mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum en gögnin eru einnig aðgengileg hér á heimasíðunni frá 16. desember 2021 til og með 31. janúar 2022.

Kynning á verkefninu ásamt tillögu að verndaráætlun er til sýnis í Safnahúsinu á Egilsstöðum á sama tíma.

Almenningi er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með 31. janúar 2022. Senda skal skriflegar athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Gögn til kynningar:

Tillaga og greinargerð, dags. 14. desember 2021

Húsakönnun, dags. 14. desember 2021

Getum við bætt efni þessarar síðu?